Svavar stóðst pungaprófið með stæl Kristján Hjálmarsson skrifar 27. maí 2013 11:30 Það er í nógu að snúast hjá Svavar Halldórssyni. Hann hefur stofnað fyrirtæki sem framleiðir meðal annars sjónvarpsþætti um mat og nú er hann kominn með pungaprófið. "
Mig hafði alltaf langað til að taka pungaprófið," segir Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður á RÚV og eiginmaður Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda, sem hefur nú öðlast réttindi til að sigla bátum allt að 24 metra löngum. "Upphaflega ætlaði ég bara að taka atvinnuréttindin sem veitir réttindi á báta allt að tólf metrum en þar sem ég þekki fólk sem á skemmtibáta og hef verið töluvert til sjós ákvað ég að taka próf sem veitir réttindi á báta allt að 24 metrum," segir Svavar sem stóðst prófið með stæl. "Þetta var mjög skemmtilegt og fróðlegt nám." Fréttamaðurinn fyrrverandi segist nú vera með augun opin fyrir einhverjum bátadíl, eins og hann orðar það, en ætlar þó ekki á strandveiðar eða neitt því um líkt. "Mér hefur alltaf þótt hálf asnalegt að vera Íslendingur, búandi á eyju, en ekki með réttindi til að sigla," segir Svavar. "Ég á góðan vin í Noregi sem varð mjög hissa þegar hann komst að því að ég væri ekki með réttindin. Í Osló er nánast hver einasti maður með siglingaréttindi, það er bara eins og að taka bílprófið." Svavar hefur nú sagt skilið við fréttamannastarfið en hefur stofnað fyrirtækið Íslenskur matur og matarmenning. "Við erum að skoða eitt og annað sem snýr að mat - sjónvarpsþáttagerð, bækur og svoleiðis. Við erum á fullu að koma fyrirtækinu á koppinn en það er ótímabært að tala um þau."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira