Fótbolti

Handviss um að strákarnir komi okkur á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hér er verið að hlúa að Kolbeini Sigþórssyni á föstudaginn en fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fylgist með. Kolbeinn var borinn af velli skömmu síðar og verður ekki með Íslandi gegn Króatíu annað kvöld.
Hér er verið að hlúa að Kolbeini Sigþórssyni á föstudaginn en fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fylgist með. Kolbeinn var borinn af velli skömmu síðar og verður ekki með Íslandi gegn Króatíu annað kvöld. fréttablaðið/Daníel
Íslenskir knattspyrnuáhugamenn tóku andköf þegar Kolbeinn Sigþórsson féll í grasið á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið, þegar Ísland gerði markalaust jafntefli við Króatíu í fyrri umspilsleik liðanna um sæti á HM 2014 í Brasilíu.

Kolbeinn var borinn af velli undir lok fyrri hálfleiks og í gærmorgun fékkst það endanlega staðfest að hann verður ekki með Íslandi í síðari rimmunni gegn Króatíu ytra annað kvöld.

Það er vitanlega mikið áfall fyrir íslenska liðið að vera án Kolbeins í Króatíu en bót í máli að meiðslin eru ekki alvarleg.

„Það er ekki enn komið á hreint hvort liðböndin eru sködduð en líklegast er að þetta sé slæm tognun,“ sagði Kolbeinn við Fréttablaðið í gær. Hann fór í röntgenmyndatöku strax eftir leik og þá kom í ljós að hann var óbrotinn.

Vonaðist eftir undrameðferð

„Ég reyndi eins og ég gat með sjúkrateyminu að ná mér góðum með einhverri undrameðferð en það er svo mikil bólga í ökklanum að hún þarf einfaldlega meiri tíma,“ bætir Kolbeinn við.

Hann segist hafa fundið strax að um slæma tognun væri að ræða og um leið óttast að seinni leikurinn gegn Króatíu væri í hættu hjá sér. Kolbeinn hefur áður þurft að glíma við erfið meiðsli þrátt fyrir ungan aldur og neitar því ekki að það sé ansi lýjandi.

„Auðvitað verður maður þreyttur á því enda hef ég misst af mörgum mikilvægum leikjum. En þetta var einmitt sá leikur sem ég vildi alls ekki missa af. Ég var eins og allir búinn að bíða lengi eftir svona tækifæri,“ segir Kolbeinn en Ísland getur á morgun tryggt sér sæti í úrslitakeppni HM 2014 í Brasilíu og um leið orðið fámennasta þjóð sögunnar sem kemst svo langt.

Handviss um að við förum á HM

Kolbeinn segir að allir í landsliðinu – leikmenn, þjálfarar og starfsmenn – hafi trú á því að það takist. „Allir eru samstiga í þessu verkefni og allir trúa á það. Strákarnir fara í leikinn með þá trú að þeir klári verkefnið og ég er handviss að þeim takist að koma okkur á HM.“

Kolbeinn segir að strákarnir viti nákvæmlega hvað þarf til að ná hagstæðum úrslitum í Króatíu. „Króatarnir sköpuðu sér ekki mikið á föstudaginn og við vitum nú hvað þeir vilja að við gerum ekki. Þeim finnst líka afar óþægileg tilhugsun að ef við náum að skora eitt þurfa þeir að skora tvö til að komast áfram. Meðbyrinn er okkar megin en öll pressa á þeim,“ segir Kolbeinn.

Við getum alltaf skorað

Niko Kovac, landsliðsþjálfari Króatíu, hafði orð á því bæði fyrir og eftir leikinn á föstudaginn að Ísland spilaði einfalda en beinskeytta knattspyrnu. Kolbeinn gaf lítið fyrir þau ummæli.

„Ég veit ekki hvað hann átti við en ég tel að við spilum mjög skemmtilegan fótbolta – sterkan varnarleik og góðan sóknarleik. Við erum alltaf hættulegir og ég veit ekki hvort það telst sem einföld knattspyrna. Við erum með lið sem getur alltaf skorað og í síðustu leikjum höfum við sýnt að við getum líka varist vel. Hann er kannski að taka þátt í einhverjum sálfræðihernaði en ég tel að flestir þjálfarar beri virðingu fyrir leik íslenska landsliðsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×