Fótbolti

Lykilmaður Íslands er Lagerbäck

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dario Srna var heldur kuldalegur við komuna til Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið.
Dario Srna var heldur kuldalegur við komuna til Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið. Fréttablaðið/Valli
„Við höfum verið meðvitaðir um mögulegar veðuraðstæður frá fyrsta degi. Íslensku strákarnir eru líklega vanari sviptivindum og kulda. Það er samt engin afsökun fyrir okkur,“ segir Dario Srna, fyrirliði Króata.

Srna, sem á að baki 108 landsleiki og 20 mörk með landsliðinu, segir marga leikmenn Króata hafa spilað við erfiðar aðstæður. Jafn margir leikmenn séu í liðunum og aðstæður þær sömu fyrir bæði lið.

Hægri bakvörðurinn vildi ekki nefna nein nöfn þegar hann var spurður út í hættulegustu leikmenn íslenska liðsins.

„Þeirra lykilmaður er þjálfarinn, Lars Lagerbäck. Hann er gamalreyndur þjálfari og þekkir vel til Króata,“ segir Kovac. Sá sænski stýrði landsliði Svía í þrígang gegn Króötum en allir leikirnir töpuðust. Leikurinn í kvöld verður því fjórða tilraun Lagerbäcks gegn Króötum.

Srna, sem spilar með Shaktar Donetsk í Úkraínu, segir Króata bera mikla virðingu fyrir íslenska liðinu. Engin hætta sé á vanmati.

„Þeir höfnuðu ekki í 2. sæti riðilsins fyrir slysni. Þeir sýndu hve mikinn karakter liðið hefur með því að jafna í 4-4 eftir að hafa lent 4-1 undir gegn Sviss á útivelli,“ segir bakvörðurinn sókndjarfi.

Srna er þó hvergi banginn og segir það hafa afar mikla þýðingu fyrir króatísku þjóðina að liðið tryggi sér sæti í HM. Þjóðin þurfi á einhverju að halda til að hlakka til næstu mánuði.

„Við höfum trú á okkur og þjálfurum okkar. Ef við spilum í takt við leiðbeiningar hans þá förum við á HM.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×