Ljóst hver spilar í stöðu hægri bakvarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 15. nóvember 2013 06:00 Landsliðið verður í eldlínunni á Laugardalsvellinum í kvöld en liðið mætir því króatíska í fyrri leik liðanna um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári. Heimir, Lagerbäck og Aron Einar voru borubrattir á blaðamannafundi í gær. Árangur liðsins hefur ekki komið þjálfaranum á óvart, þetta var alltaf markmiðið. fréttablaðið/vilhelm „
Við erum ekkert að undirbúa liðið öðru vísi núna en áður í þessari undankeppni,“ sagði Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, á blaðamannafundi á Hótel Nordica í gær. Ísland mætir Króatíu í kvöld á Laugardalsvellinum í fyrri leik liðanna í umspilinu um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári. „Það er mikilvægt að halda markinu hreinu í leiknum og því mun ég leggja leikinn upp með tilliti til þess, en annars er þetta bara venjulegur leikur fyrir okkur. Allir leikmenn liðsins eru heilir og gátu tekið þátt á æfingunni í dag.“ Íslenska landsliðið æfði innandyra í gær á meðan króatíska landsliðið æfði á Kópavogsvelli. „Við tókum þá ákvörðun þegar í ljós kom að veðrið var mjög slæmt að betra yrði að æfa innandyra. Ég get betur náð til leikmannanna inni í knattspyrnuhöll og allar aðstæður mun rólegri en hefði verið úti við þessar aðstæður.“ Króatíska landsliðið er gríðarlega vel mannað og leikmenn í liðinu á algjörum heimsmælikvarða. Þar má meðal annars nefna Luka Modric, leikmann Real Madrid, og Mario Mandžukic, leikmann Bayern München. „Leikmenn liðsins hafa skoðað andstæðinginn vel og við erum búnir að undirbúa okkur eins vel fyrir þessa leiki og mögulegt er.“ Birkir Már Sævarsson verður í leikbanni í leiknum í kvöld en hann hefur gegnt stöðu hægri bakvarðar alla undankeppnina. Hausverkur Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar aðstoðarlandsliðsþjálfara hefur því verið að velja þann leikmann sem mun leysa Birki af hólmi í kvöld.Byrjunarliðið klárt „Við höfum rætt það mál fram og til baka og að lokum komumst við að sameiginlegri ákvörðun um hægri bakvarðarstöðuna. Leikmenn íslenska landsliðsins hafa ekki fengið sjálfir að vita byrjunarliðið en það verður tilkynnt á fundi á morgun.“ Dúkur hefur verið yfir Laugardalsvellinum undanfarna daga til þess að vernda grasið. Liðin fengu ekki að æfa á vellinum fyrir leikinn í kvöld og hefur það vissulega mikið að segja varðandi leikskipulag liðanna í leiknum sjálfum. Mikil óvissa er í raun um ástand Laugardalsvallarins. „Þetta er ekki staða sem þjálfari myndi óska sér fyrir leik en þetta er það sem við þurfum að vinna með. Það mun ráða töluverðu hvernig upphitun fer og hvernig leikmennirnir ná að fóta sig á grasinu varðandi það leikskipulag sem við leggjum upp með í leiknum sjálfum. Ef völlurinn er í slæmu standi munum við leggja leikinn upp á sem auðveldastan hátt fyrir leikmennina sjálfa.“ Ísland hefur aldrei áður komist svona langt í undankeppni heimsmeistaramóts og því um mikilvægasta landsleik íslenska karlalandsliðsins í sögunni að ræða. „Þetta er það sem liðið hefur unnið að síðustu tvö árin og því gríðarlega mikið undir. Þegar ég tók við liðinu settist ég niður með Heimi og við settum okkur markmið. Það var skýrt, liðið ætlaði sér að hafna í tveimur efstu sætum riðilsins. Þessi árangur liðsins hefur því alls ekki komið okkur neitt sérstaklega á óvart.“ Niko Kovac tók við króatíska landsliðinu eftir undankeppnina en Igor Štimac var sagt upp sem landsliðsþjálfara liðsins. Króatía lék í raun skelfilega undir lok riðlakeppninnar og slapp því með skrekkinn að komast í umspilið.Vita lítið um stíl nýja þjálfarans „Það verður vissulega nokkuð erfitt fyrir okkur að greina króatíska liðið en nýr þjálfari getur komið inn með nýjar áherslur og því ómögulegt fyrir okkur að vita hvort liðið verður sóknarsinnað í leik sínum eða leggi upp með að liggja aftarlega og verjast. Ég býst við Króötunum mjög öguðum og einbeittum og það verður erfitt fyrir okkur að brjóta þá á bak aftur. Þetta lið er vel skipað og með hættulega menn í nánast öllum stöðum. [Darijo] Srna er ávallt með hættuleg skot, miðjumenn liðsins eru frábærir og Mario Mandžukic hættulegur fram á við. Þetta verður án efa mjög erfiður leikur fyrir okkar leikmenn en liðið er klárt.“
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Íslenski boltinn „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Fótbolti Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn „Sem betur fer slapp þetta“ Fótbolti Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Antonelli hélt uppteknum hætti Formúla 1 Fleiri fréttir „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ Inter er Ítalíumeistari „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjáðu markmann leggja upp mark gegn liði Kristians Glódís Perla úr leik í Meistaradeildinni Daníel Freyr lagði upp í sigri gegn Viktori Bjarka Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Ferguson fluttur á spítala Mark Hákonar dugði skammt Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ Sjá meira