„Ég reyni að vera almennileg manneskja og liðsmaður“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. nóvember 2013 07:30 Markverðirnir Gunnleifur og Hannes Þór Halldórsson voru í stuði á æfngu landsliðsins í gær. fréttablaðið/vilhelm „
Það er lykilatriði að fá ekki á sig mark í heimaleiknum. Á meðan við höldum þeim markalausum þá eigum við góða möguleika,“ segir landsliðsmarkvörðurinn og öldungurinn í íslenska landsliðshópnum, Gunnleifur Gunnleifsson. Hann segir sjálfstraustið í íslenska landsliðshópnum vera gríðarlegt.“ „Við höfum mikla trú á okkur og okkar getu. Við teljum okkur geta gert hvað sem er gegn hverjum sem er. Það er enginn hroki að segja það. Við höfum mikla trú á okkur og höfum sýnt hvað við getum. Svo hafa menn mikinn metnað fyrir landsliðinu. Það er engin ástæða til annars en að vera kokhraustur.“ Gunnleifur hefur þurft að verma tréverkið þar sem Hannes Þór Halldórsson heldur stöðu aðalmarkvarðar. Gunnleifur tekur hlutverk sitt í hópnum alvarlega og leggur sitt af mörkum þó svo hann sé ekki að spila. „Ég reyni að vera almennileg manneskja og liðsmaður. Ég hjálpa hópnum til þess að ná árangri. Auðvitað vil ég spila en það spilar bara einn markvörður í einu. Það er Hannes í dag og hann er að spila frábærlega. Það kemur því í minn hlut að styðja við hann og ég geri það eins vel og ég get. Við værum ekkert að ná þessum árangri nema allir stæðu saman. Alveg sama hvar þeir eru í goggunarröðinni.“ Kópavogsbúinn segir að hópurinn hjá íslenska liðinu sé sérstakur og samheldnin mikil. Það sé einn hluti þess að liðið sé að ná þessum flotta árangri. „Það er algjört lykilatriði. Það hefði ekki gengið svona vel ef hópurinn væri ekki þetta góður og í svona miklu jafnvægi. Það styðja allir hver annan. Við breytum því ekkert út af vananum í undirbúningnum. Við erum ekkert of spenntir né of slakir. Þó svo umfangið sé meira í kringum þennan leik þá höldum við okkar striki.“Erum með gæðamenn Það verður væntanlega nóg að gera hjá bakverðinum Ara Frey Skúlasyni við að halda aftur af sprækum sóknarmönnum Króata. „Ég verð að vera á tánum í 95 mínútur og vera tilbúinn, líkamlega sem andlega. Þetta verður svipað erfitt og gegn Sviss,“ sagði Ari Freyr ákveðinn fyrir æfingu íslenska liðsins í Kórnum í gær. „Þeir eru með frábæra kantmenn. Virkilega góða fótboltamenn. Enginn rosalega fljótur en allir góðir í fótbolta. Það verður að halda einbeitingu allan tímann. Vera í bakinu á þeim og gefa ekkert eftir,“ bætir Ari við en hann er kokhraustur. „Við erum með gæðaleikmenn sem geta skorað hvenær sem er. Við þurfum ekki að bera virðingu fyrir þeim. Þeir ættu frekar að bera virðingu fyrir okkur þar sem við komumst í þessa stöðu.“
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira