Nítján leikmenn á hættusvæði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. nóvember 2013 06:30 Gylfi er á gulu spjaldi. fréttablaðið/pjetur
Átta leikmenn Íslands eru einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann í undankeppninni. Fái þeir gult spjald í fyrri leiknum á Laugardalsvelli er ljóst að þeir missa af síðari leiknum í Zagreb. „Það hafa alltof margir leikmenn okkar verið í banni í undankeppninni,“ segir Lars Lagerbäck. Jafnlítið land og Ísland megi ekki við því að margir leikmenn fari í leikbann. „Agi leikmanna í undanförnum leikjum hefur þó verið til fyrirmyndar,“ segir Svíinn og tölfræði lýgur ekki. Liðið hefur fengið fjögur gul spjöld í síðustu fjórum leikjum en átján gul og eitt rautt í leikjunum sex á undan. Birkir Már Sævarsson verður níundi leikmaðurinn sem tekur út leikbann hjá Íslandi í undankeppninni. Svíinn segir gulu spjöldin ekki munu hafa áhrif á liðsvalið í leiknum á Laugardalsvelli. „Við munum velja besta liðið í fyrri leikinn óháð sjöldunum. Það er mikilvægt að að vinna fyrri leikinn heima. Til þess þarftu þitt sterkasta lið til að stjórna leiknum. Það væri líka yndislegt ef Króatar myndu ekki skora.“ Heimir Hallgrímsson, aðstoðarmaður Svíans, minnti á að gul spjöld væru ekki aðeins áhyggjuefni Íslendinga. „Þeir eru með ellefu leikmenn á gulu spjaldi þannig að við getum ekki grátið yfir þessu,“ segir Heimir. Nítján leikmenn eru því á hættusvæði í fyrri leiknum. Lagerbäck fagnar því að dómari leiksins, Alberto Undiano, er í hæsta gæðaflokki. Í fyrsta skipti í undankeppninni verður maðurinn með flautuna úr hæsta styrkleikaflokki dómara.Þeir eru á hættusvæði Aron Einar Gunnarsson Sölvi Geir Ottesen Gylfi Þór Sigurðsson Alfeð Finnbogason Kári Árnason Eggert Gunnþór Jónsson Emil Hallfreðsson Kolbeinn Sigþórsson
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira