Erlent

Reinfeldt borgi afnotagjald

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Fredrik Reinfeldt greiðir ekki afnotagjald af sjónvarpi í embættisbústað sínum.
Fredrik Reinfeldt greiðir ekki afnotagjald af sjónvarpi í embættisbústað sínum. Nordicphotos/AFP
Innheimtudeild sænska ríkisútvarpsins fullyrðir að Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, eigi að greiða afnotagjald fyrir sjónvarp í embættisbústað sínum. Það er hins vegar mat starfsmanna í stjórnarráðinu að afnotagjaldið sem ríkisstjórnin borgar nái einnig til sjónvarpsins í embættisbústaðnum.

Við stjórnarmyndun 2006 kom í ljós að þrír ráðherranna höfðu ekki greitt afnotagjald. Tveir þeirra urðu að víkja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×