Yfir 300 ungbörn án dagvistunar Valur Grettisson skrifar 5. september 2013 07:00 Samkvæmt núverandi skipulagi sjá dagforeldrar og ungbarnaleikskólar um dagvistun ungbarna.
Á fjórða hundrað ungbarna eru ekki í skráðri dagvistun hjá Reykjavíkurborg. Árið 2011 var þessi fjöldi 340 börn samkvæmt greiningu skóla- og frístundasviðs. Formaður skóla- og frístundaráðs segir ekkert benda til að þessi tala hafi lækkað síðan þá. Þessi ungbörn eru þá líklega hjá foreldrum sínum yfir daginn eða öðrum ættingjum. „Það er ótrúlegt að borgin skuli ekki hafa í 20 ár gert áætlun um að yngja upp í þessum hópi,“ segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sem bókaði á fundi borgarstjórnar í gær að hún vildi að borgarreknir leikskólar stæðu ungbörnum frá tólf mánaða aldri til boða eftir að fæðingarorlofi sleppir. Búið er að greina kostnaðinn við þetta úrræði og er búist við að það muni kosta borgina 1.250 milljónir á ári að vista 740 ungbörn. Sóley segir að það þurfi að gera áætlun um að yngja upp í leikskólunum „og við gætum til að mynda stefnt að því að brúa bilið fyrir árið 2016,“ bætir hún við. Á síðasta ári lagði hún fram tillögu þess efnis að borgarstjórinn ræddi við menntamálaráðherra um að brúa bilið frá fæðingarorlofi fram að leikskóla. Borgin óskaði eftir viðræðum við menntamálaráðherra í gær.Sóley Tómasdóttir og Oddný Sturludóttir.„Kerfið hefur sína galla en þjónustan er góð,“ segir Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs. Hún bætir við að alltaf megi gera betur. Hún segir börnum hafa fjölgað gríðarlega á leikskólum borgarinnar á síðustu fjórum árum. Þannig hafi 400 börn bæst við þann stóra hóp barna sem fyrir er „með tilheyrandi álagi, sem við ráðum þó vel við“. Hún leggur áherslu á fjölbreytt úrræði í dagvistunarmálum ungbarna „en mín framtíðarsýn er sú að við eigum smátt og smátt að þróa leikskólana í þá átt að taka á móti yngri börnum“. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist frekar vilja styrkja þá þjónustu sem fyrir er. Hún segir kostnaðinn við hvert barn undir tveggja ára aldri vera tvær milljónir króna á ári. Spurð hvort það sé raunsætt mat að borgin geti þjónustað svo mörg börn fyrir 1.250 milljónir á ári segist Þorbjörg telja upphæðina frekar nær þremur milljörðum. Til samanburðar segir hún að barn hjá dagforeldri kosti borgina á bilinu 600-700 þúsund og pláss á ungbarnaleikskóla fyrir eitt barn kosti 1,2 milljónir á ári.Mæður komast fyrr út á vinnumarkað Skóla- og frístundasvið kannaði áhrif þess að börn væru tekin ári fyrr í leikskóla. Meðal annars kom í ljós að breytingin gæti haft jákvæð áhrif fyrir foreldra og jafnvel gert foreldrum, og þá sérstaklega mæðrum, auðveldara fyrir að fara fyrr út á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof. Það hefði hins vegar mikil áhrif á þá 200 dagforeldra sem starfa nú við daggæslu ef forsendur fyrir slíkum rekstri væru brostnar. Búist er við helmingsfækkun dagforeldra verði slíkt að veruleika.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira