Fótbolti

O'Neill ætlar ekki að múlbinda Keane

Landsliðsþjálfarateymi Íra.
Landsliðsþjálfarateymi Íra.
Ákvörðun Martin O'Neill, landsliðsþjálfara Írlands, að ráða Roy Keane sem sinn aðstoðarmann hefur vakið talsverða athygli. Fæstir hafa trú á því að Keane geti verið góður og þægur aðstoðarmaður.

Keane er nagli af gamla skólanum og með munninn fyrir neðan nefið. Óttast margir að hann muni láta illa að stjórn og fleiri efast hreinlega um að hann kunni að vera aðstoðarmaður með tilheyrandi skyldum.

O'Neill segir að það sé öllum ljóst hver sé númer eitt og hver sé númer tvö. Hann ætlar engu að síður ekki að múlbinda aðstoðarmann sinn.

"Ég þarf að koma einu á framfæri. Ég er ekki faðir hans Roy, bara alls ekki. Hann sér um sjálfan sig og segir það sem hann vill segja," sagði O'Neill við blaðamenn.

"Hann er ekki í neinu þagnarbindi og er frjálst að tjá sig eins og hann vill. Ég þarf ekki einu sinni að ræða það við hann. Ég ætla ekki að segja við hann hvað hann megi tjá sig um hvað ekki."

Þeir félagar stýra sínum fyrsta landsleik á föstudag er Írar mæta Lettum í vináttulandsleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×