Frábært tækifæri til að styrkja Stígamót Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 7. mars 2013 06:00 Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum eru Páll Óskar og Monika, Lay Low og Eyþór Ingi. „
Um leið og ég heyrði að það væri verkefni í áfanganum sem snéri að því að skipuleggja og setja upp viðburð, þá datt mér þetta í hug," segir tómstundafræðineminn Jón Skúli Traustason sem, ásamt samnemendum sínum Signý Árnadóttur og Sirrý G.S. Sigurðardóttur, stendur að baki styrktartónleikum fyrir Stígamót í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 4.apríl næstkomandi. Viðburðastjórnun er einn kúrs sem þremenningarnir taka í tómstundafræðinámi sínu í HÍ og segir Jón Skúli að hann hafi ekki verið mjög spenntur fyrir áfanganum áður en hann hófst, en sú skoðun hafi þó fljótlega breyst. „Að setja upp þessa tónleika er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert, þó þetta hafi vissulega verið mikil vinna," segir hann. Hann telur þau þó hafa sloppið frekar vel þar sem allt hafi gengið draumi líkast. „Allir sem við höfum talað við um að aðstoða okkur við tónleikana hafa sagt já og auk þess hafa listamennirnir verið duglegir við að ráðleggja með hitt og þetta, sem er ómetanlegt" segir hann en þetta er fyrsti stóri viðburðurinn sem Jón Skúli, Signý og Sirrý standa fyrir. Páll Óskar, Monika, Eyþór Ingi, Vala Guðna, Andrea Gylfa, Lay Low og Ellen Kristjáns stíga á stokk á tónleikunum og öll gefa þau vinnu sína. Exton styrkir tónleikana um hljóðkerfið og afnot af Fríkirkjunni eru einnig endurgjaldslaus. „Það eru allir glaðir að geta styrkt þetta verðuga málefni," segir Jón Skúli. „Ég þekki það sjálfur hvað er unnið ótrúlega mikilvægt starf þarna þar sem fólk nákomið mér hefur þurft að leita sér hjálpar hjá Stígamótum. Mér finnst því frábært að fá tækifæri til að styrkja þau á þennan hátt," bætir hann við. Miðasala á tónleikana hefst í dag á midi.is.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira