Lífið

Frábært tækifæri til að styrkja Stígamót

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar
Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum eru Páll Óskar og Monika, Lay Low og Eyþór Ingi.
Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum eru Páll Óskar og Monika, Lay Low og Eyþór Ingi.
„Um leið og ég heyrði að það væri verkefni í áfanganum sem snéri að því að skipuleggja og setja upp viðburð, þá datt mér þetta í hug," segir tómstundafræðineminn Jón Skúli Traustason sem, ásamt samnemendum sínum Signý Árnadóttur og Sirrý G.S. Sigurðardóttur, stendur að baki styrktartónleikum fyrir Stígamót í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 4.apríl næstkomandi.

Viðburðastjórnun er einn kúrs sem þremenningarnir taka í tómstundafræðinámi sínu í HÍ og segir Jón Skúli að hann hafi ekki verið mjög spenntur fyrir áfanganum áður en hann hófst, en sú skoðun hafi þó fljótlega breyst.

„Að setja upp þessa tónleika er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert, þó þetta hafi vissulega verið mikil vinna," segir hann. Hann telur þau þó hafa sloppið frekar vel þar sem allt hafi gengið draumi líkast. „Allir sem við höfum talað við um að aðstoða okkur við tónleikana hafa sagt já og auk þess hafa listamennirnir verið duglegir við að ráðleggja með hitt og þetta, sem er ómetanlegt" segir hann en þetta er fyrsti stóri viðburðurinn sem Jón Skúli, Signý og Sirrý standa fyrir.

Páll Óskar, Monika, Eyþór Ingi, Vala Guðna, Andrea Gylfa, Lay Low og Ellen Kristjáns stíga á stokk á tónleikunum og öll gefa þau vinnu sína. Exton styrkir tónleikana um hljóðkerfið og afnot af Fríkirkjunni eru einnig endurgjaldslaus. „Það eru allir glaðir að geta styrkt þetta verðuga málefni," segir Jón Skúli.

„Ég þekki það sjálfur hvað er unnið ótrúlega mikilvægt starf þarna þar sem fólk nákomið mér hefur þurft að leita sér hjálpar hjá Stígamótum. Mér finnst því frábært að fá tækifæri til að styrkja þau á þennan hátt," bætir hann við. Miðasala á tónleikana hefst í dag á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.