Býst við að sumir fái á baukinn 13. febrúar 2013 13:30 "
Mér finnst að þetta eigi að vera þannig að maður eigi að skjóta aðeins á félagana í þessum bransa," segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson. "Ég held að manni leyfist aðeins meira á þessu kvöldi en manni myndi leyfast venjulega." Logi verður kynnir á Edduverðlaununum annað árið í röð á laugardaginn. Hátíðin verður haldin í Eldborg í Hörpu og verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. Logi Bergmann vakti athygli á Eddunni í fyrra fyrir að skjóta laufléttum skotum á hina ýmsa aðila innan sjónvarps- og kvikmyndabransans við góðar undirtektir gesta, nema kannski þeirra sem grínið beindist að. Aðspurður segist hann hafa fengið góð viðbrögð í fyrra við gríninu sínu. "Ég held að þetta sé það sem menn vilja. Það var ábyggilega einhver fúll en ef menn eru fúlir segja þeir venjulega ekkert rosalega mikið við mann. Í staðinn fækkar vinunum allt í einu á Facebook, eða eitthvað," segir hann og hlær. Logi Bergmann var ekki byrjaður á að semja opnunaratriðið sitt í gær en býst fastlega við því að einhverjir fái á baukinn. "Ég er ekki alveg búinn að ákveða í hvaða átt ég ætla að fara. Þannig séð á þetta að vera annáll á kvikmyndaárinu, þannig að ég mun rifja upp það sem gekk og gekk ekki," segir hann. "Það er alltaf skemmtileg stemning á þessu kvöldi alveg þangað til þetta er búið og allir eru komnir í fýlu yfir því að hafa ekki unnið." Hægt er að sjá upphafsatriði Loga frá Eddunni í fyrra hér fyrir ofan og á Vísir Sjónvarp
Mest lesið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Menning Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Sjá meira