Erlent

Má taka sjálfstæðar ákvarðanir

Boði Logason skrifar
„Ég vil fá að ráða því sjálfur hvað ég geri, hvert ég fer, með hverjum, hvert ég ferðast, hvar ég vinn eða læri,“ sagði Ricardo Aldair í dómsal.
„Ég vil fá að ráða því sjálfur hvað ég geri, hvert ég fer, með hverjum, hvert ég ferðast, hvar ég vinn eða læri,“ sagði Ricardo Aldair í dómsal.
Ricardo Aldair, tuttugu og fimm ára mexíkani með Asperger heilkennið, vann í morgun mál í Hæstarétti sem hann höfðaði gegn mexíkóska ríkinu.

Aldair hélt því fram að hann hefði rétt til að taka sjálfstæðar ákvarðanir, til dæmis að sækja um vegabréf, ökuskírteini eða kaupa sér farsíma. Mexíkósk lög heimiluðu honum það ekki vegna þess að hann er með Aspgerger.

Í málsvörn sinni hélt hann því fram að mexíkósk lög brytu í bága við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

„Ég vil fá að ráða því sjálfur hvað ég geri, hvert ég fer, með hverjum, hvert ég ferðast, hvar ég vinn eða læri,“ sagði Aldair í dómsal.

Hann hefur staðið í málaferlunum í tvö ár, og hafa óháð félagasamtök stutt hann fjárhagslega.  Talið er að dómurinn í morgun hafi víðtæk áhrif fyrir einhverfa í Suður-Ameríku.

Eins og áður sagði vann Aldair málið, fjórir dómarar tóku undir sjónarmið hans en einn var á móti.

Frétt BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×