Fótbolti

Zidane var betri en Messi

Pelé ásamt Ronaldo.
Pelé ásamt Ronaldo.
Þegar Pelé opnar munninn hlustar heimurinn þó svo oftar en ekki sé það umdeilt sem þessi brasilíska goðsögn lætur frá sér.

Pelé er ódrepandi í að tjá sig um alla mögulega og ómögulega hluti. Nú síðast var hann að bera Lionel Messi saman við franska snillinginn Zinedine Zidane.

"Mitt mat er að Zidane var betri en Messi. Zidane var algjörlega stórkostlegur og var ekki með eins góða menn með sér og Messi hefur í dag," sagði Pelé.

Brasilíumaðurinn segir þó að hann myndi kjósa Messi sem besta knattspyrnumann heims í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×