Fótbolti

Ekkert æft á Laugardalsvelli í dag

Dúkurinn er enn á vellinum.
Dúkurinn er enn á vellinum.
Venju samkvæmt æfa lið á keppnisvelli daginn fyrir leik en sú verður ekki raunin fyrir leik Íslands og Króatíu.

Ákveðið hefur verið að leyfa ekki æfingar á vellinum í dag en það er eftirlitsdómari leiksins, Englendingurinn Mark Blackbourne, sem tekur þá ákvörðun. Hann telur að æfingar í dag geti skemmt völlinn og það muni hafa áhrif á leikinn á morgun.

Króatar munu því æfa á Kópavogsvelli rétt fyrir hádegi í dag. Íslenska liðið mun aftur á móti taka sína lokaæfingu inn í Kórnum.

Að sögn Ómars Smárasonar, fjölmiðlafulltrúa KSÍ, hafa allir aðilar skilning á þessari ákvörðun. Það vilja allir hafa völlinn í lagi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×