Fótbolti

Aðeins Ari og Gylfi kæmust í króatíska liðið | Birkir veiki hlekkurinn

Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason.
Eins og gefur að skilja fjalla króatískir fjölmiðlar mikið um leikinn gegn Íslandi á morgun. Þar má finna ýmislegt áhugavert.

Í grein á miðlinum Jutarnji er því haldið fram að aðeins Ari Freyr Skúlason og Gylfi Þór Sigurðsson gætu komist í byrjunarlið Króata. Harðjaxlinn Birkir Bjarnason er síðan sagður vera veiki hlekkurinn í íslenska liðinu en það verður að teljast ansi áhugaverð yfirlýsing.

Einnig er fjallað um verðið á leikmönnum liðanna og þá kemur í ljós að byrjunarlið Króata er sex sinnum dýrara en íslenska liðið. Reyndar eru þeir Luka Modric og Mario Mandzukic dýrari en allt byrjunarlið íslenska liðsins.

Peningar munu þó ekki ráða neinu þegar leikið verður í íslenskum kulda á Laugardalsvelli annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×