Fótbolti

Veðrið er algjört aukaatriði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson.
Veðurspáin fyrir föstudaginn 15. nóvember bendir til þess að hiti gæti orðið um frostmark og þó nokkur vindir. Lars Lagerback telur að veðrið gæti mögulega hjálpað okkar mönnum lítillega en þó þýði lítið að spá í það.

„Króatar spila víða um Evrópu og eru vanir ýmsum skilyrðum. Ég held að veðrið verði ekki aðalatriði þegar út á völlinn verður komið,“ sagði Svíinn.

Hann minntist þess þegar hann stýrði sænska landsliðinu á Laugardalsvelli í eitt skipti og afar hvasst var í veðri.

„Einhverjir leikmenn kvörtuðu en þá þurfti ég bara að minna þá á að aðstaðan væri sú sama fyrir bæði lið.“ Nauðsynlegt sé að eyða ekki orku í að hugsa um hluti sem ekki verði við ráðið.

„Ef þú pælir í svona hlutum þá missirðu sjónar á því sem skiptir máli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×