Króatar eru stríðsþjóð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. nóvember 2013 07:00 Samvinna Gagnkvæm virðing lýsir vel samskiptum þjálfaranna Lars og Heimis sem ná vel saman.Fréttablaðið/Daníel
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerback var kvefaður en kokhraustur þegar hann tilkynnti fjölmiðlamönnum 22 manna leikmannahóp fyrir landsleikina mikilvægu gegn Króötum. Fyrri leikurinn fer fram föstudagskvöldið 15. nóvember en sá síðari í Zagreb fjórum dögum síðar. Fátt kom á óvart í vali Svíans og aðstoðarmanns hans, Heimis Hallgrímssonar, sem nýttu tímann frekar í að velta fyrir sér styrkleika andstæðinganna og spá í spilin. „Þetta er áhugaverð staða. Við erum komnir í umspili fyrir HM og hlökkum til,“ sagði Svíinn í upphafi fundarins. Hann leit yfir farinn veg og benti á að skipst hefðu á hæðir og lægðir í undankeppninni. Liðið hefði hins vegar fært sig upp á skaftið eftir sumarið og farið á kostum ef frá er talinn fyrri hálfleikurinn í 4-4 jafnteflinu gegn Sviss. Endurkoman í Sviss hafi gefið liðinu mun meira en eitt stig. Sjálfstraustið hafi aukist og nú viti menn að allt sé hægt. „Síðan þá hefur leikur okkar stórbatnað. Við töpuðum hins vegar of mörgum leikjum á heimavelli til að eiga möguleika á að vinna riðilinn.“ Heimir hefur legið yfir upptökum af leik Króata sem hafa verið í fremstu röð í heiminu um árabil. „Þeir eru svona stríðsþjóð með gríðarlegan metnað,“ sagði Heimir um þá rauð- og hvítklæddu. Lars þekkir vel til nýs þjálfara liðsins, Niko Kovac, sem geti komið sér vel. Sömuleiðis sú staðreynda ð hann hafi stýrt sænska liðinu gegn Króötum og þekki vel til liðsins og aðstæðna í Zagreb. „Króatar hafa verið á meðal tíu efstu á styrkleikalista FIFA síðastliðin fjögur ár. Það er fyrst núna sem aðeins hefur dregið af þeim,“ sagði Heimir um stöðugleika Króata sem sitja í dag í 18. sæti listans. „Á sama tíma hefur gengi Íslands verið meira eins og línurit hjá hjartasjúklingi,“ sagði Heimir og uppskar hlátur nærstaddra. „Bilið á milli þjóðanna er alltaf að minnka og við förum óhræddir í þennan bardaga gegn þeim.“ Óvissa ríkir um það hver muni manna stöðu hægri bakvarðar í fjarveru Birkis Más Sævarssonar sem tekur út leikbann. Nokkrir möguleikar eru í stöðunni þótt líklegast megi telja að það komi í hlut Hallgríms Jónassonar, Ólafs Inga Skúlasonar eða Rúriks Gíslasonar. „Króatarnir hafa eyru,“ sagði Heimir og vildu þeir félagar ekkert gefa upp um væntanlegt útspil sitt.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Sjá meira