Jóhannes Páll: Tvö og hálft ár fyrir kynferðisbrot Kristján Hjálmarsson skrifar 13. ágúst 2013 11:24 Jóhannes Páll Sigurðsson er 45 ára en hét áður Jóhann Sigurðarson.
Jóhannes Páll Sigurðsson var rétt í þessu dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðisbrot. Jóhannes Páll játaði að hafa brotið sér leið inn á þrjú heimili fyrr í sumar og í tveimur tilvikum haft uppi kynferðislega tilburði við ókunnugt kvenfólk. Þá reyndi hann að brjótast inn á tvö heimili til viðbótar. Jóhannes, sem áður hét Jóhann Sigurðarson, er 45 ára og hefur áður hlotið dóma fyrir sambærileg, en grófari, brot. Hann var handtekinn aftur um miðjan júní vegna málanna sem hann var nú dæmdur fyrir og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Málin sem um ræðir eru fimm talsins og áttu sér mestmegnis stað á sama sólarhringnum í júní. Það grófasta var þegar hann braust inn á heimili hjóna, afklæddist og fór nakinn inn í sturtu til konunnar, króaði hana af upp við vegg og nuddaði sér utan í hana. Maður hennar var þá heima. Í ákærunni er þetta talið varða við hegningarlagaákvæði um brot gegn blygðunarsemi. Í öðru tilviki var hann kominn á rúmgaflinn hjá sautján ára unglingsstúlku og byrjaður að strjúka á henni handarbakið þegar foreldrar stúlkunnar urðu hans varir og ráku hann á dyr. Maðurinn gekkst við því að strokurnar hefðu haft kynferðislegan tilgang og var hann ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn stúlkunni. Í þriðja skiptið var honum vísað út úr húsi þar sem hann var kominn snuðrandi inn í barnaherbergi, og í tvö skipti til viðbótar reyndi hann að ryðja sér leið inn á ókunnug heimili en húsráðendur, kona í öðru tilvikinu og ung stúlka í öðru, gátu haldið honum úti með því að leggjast á hurðina. Jóhannes játaði sem áður segir öll brotin sem honum voru gefin að sök, þrjú húsbrot, tvær tilraunir til húsbrots, blygðunarsemisbrot og kynferðislega áreitni. Hann sagðist hins vegar hafa verið í annarlegu ástandi og ekkert muna eftir atvikunum. Brotin voru framin örfáum dögum eftir að hann hafði staðist skilorð reynslulausnar fyrri dóma, sem meðal annars fól í sér að hann mætti ekki neyta áfengis.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira