Fótbolti

Fylgjast með Alfreð á hverjum degi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum hjá Heerenveen.
Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum hjá Heerenveen. Nordicphotos/Getty
Óvíst er hvort framherjinn Alfreð Finnbogason geti spilað með liði sínu Heerenveen gegn Go Ahead Eagles um helgina. Meiðsli tóku sig upp hjá Alfreð á æfingu á föstudag sem urðu til þess að hann missti af 1-1 jafnteflisleiknum gegn PSV Eindhoven um helgina.

Alfreð var í eldlínunni með íslenska karlalandsliðinu í 2-0 tapinu gegn Króatíu í Zagreb á þriðjudagskvöldið fyrir viku. Hann hélt svo til móts við liðsfélaga sína í Hollandi en meiddist þar á síðustu æfingu fyrir leik.

Alfreð fékk högg á lærvöðva á æfingunni og hefur síðan verið í skoðun hjá sjúkrateymi hollenska félagsins.

„Við söknum Alfreðs en vonandi ekki lengi. Við verðum þó að fara að öllu með gát. Við fylgjumst með honum dag frá degi. Í lok vikunnar vitum við hvort hann geti spilað um helgina,“ segir Erik ten Voorde, sjúkraþjálfari Heerenveen, við hollenska fjölmiðla.

Alfreð, sem er markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar með 14 mörk, er þrálátlega orðaður við stærri félög í álfunni. Nú síðast eru það Rómarliðin Lazio og Roma sem ku vera áhugasöm um þjónustu kappans þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×