Erlent

Stærsti heiti reitur í Bandaríkjunum verður í Harlem

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York.
Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York. nordicphotos/getty
Borgarstjórinn í New York vill bæta internetaðgengi íbúa í Harlem en stærsti heiti reitur í Bandaríkjunum verður staðsettur í hverfinu.

Mun þetta vera skref í áttina að bæta internetaðgengi í fátækri hverfum í borginni.

Reiturinn hefur einfaldlega fengið nafnið Harlem Wi-Fi og eiga 80 þúsund manns í hverfinu eftir að hafa aðgang að netinu sem verður frá 110. stræti til 138. stræti í New York borg en Michael Bloomberg tilkynnti þetta í bandarískum fjölmiðlum í gær.

Stefnt er að því að reiturinn verði fullkláraður í maí á næsta ári. Bloomberg tilkynnti einnig að fyrir lok september á næsta ári verður búið að setja á laggirnar fleiri samskonar reiti í fimm fátækra hverfum í New York.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×