Viss stimpill á mín eigin gæði Stefán Árni Pálsson skrifar 6. ágúst 2013 08:15 Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun leika í sömu deild og Didier Drogba og Wesley Sneijder á næsta tímabili á Tyrklandi. Mynd / getty images
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið Konyaspor, en liðið vann sér sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni í vor. Leikmaðurinn stóðst læknisskoðun um helgina og skrifaði í framhaldinu af því undir samning við félagið. Gunnar átti þrjá mánuði eftir af samningi sínum við sænska félagið Norrköping og fær það dágóða summu fyrir leikmanninn. „Ég er virkilega ánægður með að mitt gamla félag fær einhvern pening fyrir mig en þjálfarinn og allir í kringum Norrköping hafa reynst mér gríðarlega vel,“ segir Gunnar Heiðar. Eyjamaðurinn gekk í raðir ÍBV árið 2011 og ætlaði sér þá að setjast að á Ísland. Ferill hans hefur verið sveiflukenndur en Gunnar hafði áður leikið með Halmstad, Hannover, Vålerenga, Esbjerg, Reading og Fredrikstad áður en hann gekk í raðir Norrköping. „Það er gaman að ná góðum árangri og vekja athygli sterkra liða í Evrópu, sérstaklega eftir að halla fór undan fæti hjá mér um tíma,“ segir Gunnar Heiðar, en Konyaspor ætlar sér stóra hluti í úrvalsdeildinni. „Þetta er ótrúlega spennandi verkefni og eigendur félagsins eru með háleit markmið. Þetta ferðalag mitt hefur kostað mikla vinnu og ótrúlegt að maður sé allt í einu kominn í deild með heimsklassaleikmönnum. Viss stimpill á mín eigin gæði.“ Gunnar mun því leika knattspyrnu í Tyrklandi en tímabilið þar hefst í ágúst.
Fótbolti Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Fótbolti Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Íslenski boltinn „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ Hringekja tapreksturs í fótboltanum „Ísland breytti lífi mínu“ Draumur að vinna með José Mourinho Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Neymar vill að þeir neikvæðu haldi sig heima Sjá meira