Lífið

Poppað fyrir Kulusuk í dag

Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er aðgangur ókeypis.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er aðgangur ókeypis. Mynd/Jónas Guðmundsson
Tónlistarmennirnir Mugison, Lára Rúnars og Jónas Sig koma fram á tónleikum í Grænlandssetrinu, Bolungarvík í dag. Tónleikarnir verða til styrktar nágrönnum okkar í Kulusuk á Grænlandi sem misstu eina tónlistar- og samkomuhús staðarins í bruna fyrir stuttu.

Um síðustu helgi voru tónleikar í Hörpu til stuðnings Kulusuk og vill Grænlandssetrið ekki láta sitt eftir liggja og hefur því í samstarfi við aðstandendur tónleikahátíðarinnar Aldrei fór ég suður blásið til tónleika í aðstöðu sem setrið hefur fengið lánað hjá félagsmiðstöðinni að Vitastíg 1, Bolungarvík. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er aðgangur ókeypis.

Þeir sem vilja styrkja söfnun til stuðnings byggingu nýs tónlistarhúss geta hringt í eftirtalin símanúmer

Sími 901 5001 -- 1000 krónur

Sími 901 5002 -- 2000 krónur

Sími 901 5003 -- 3000 krónur

Þá er tekið við framlögum á reikning Grænlandsseturs í banka 1176, hb. 26, reikningsnúmer 805, kennitala 630310-0320, merkt Kulusuk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.