Fótbolti

Frakkar risu upp frá dauðum og komust á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Frakkar verða með á HM í Brasilíu eins og Grikkir, Króatar og Portúgalir, þrátt fyrir að útlitið hafi ekki verið bjart hjá franska landsliðinu fyrir umspilsleiki kvöldsins. Frakkar unnu upp tveggja marka forskot Úkraínumanna og tryggðu sér sæti á HM í Frakklandi með 3-2 sigri á Úkraínu.

Markið sem kom Frökkum á HM var sjálfsmark Oleg Gusev eftir mikla pressu frá Mamadou Sakho, varnarmanni Liverpool, en Sakho hafði áður skorað fyrsta mark Frakka í leiknum. Sigurmarkið kom á 72. mínútu leiksins.

Frakkar unnu því samanlagt 3-2 og verða með á HM í fjórtánda sinn. Frakkar munu því taka þátt í sínu fimmta heimsmeistaramóti í röð en þeir urðu heimsmeistarar árið 1998.

Frakkar voru fljótir að vinna upp forskot Úkraínumanna frá því í fyrri leiknum því það tók þá bara rétt rúmlega hálftíma að skora tvö mörk.

Mamadou Sakho kom Frökkum í 1-0 á 22. mínútu þegar hann skoraði í autt markið eftir að hafa verið á réttum stað þegar Andriy Pyatov, markvörður Úkraínu, hálfvarði skot Franck Ribery.  

Karim Benzema kom Frökkum í 2-0 á 34. mínútu þrátt fyrir að vera augljóslega rangstæður þegar hann fylgdi eftir skoti Yohan Cabaye. Benzema hafði skorað annað mark skömmu áður en var þá ranglega dæmdur rangstæður.

Frakkar þurftu því bara eitt mark í viðbót og það datt inn 18 mínútum fyrir leikslok þótt að boltinn hafi farið af Úkraínumanni og í netið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×