Frakkar risu upp frá dauðum og komust á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2013 19:45 Mynd/NordicPhotos/Getty
Frakkar verða með á HM í Brasilíu eins og Grikkir, Króatar og Portúgalir, þrátt fyrir að útlitið hafi ekki verið bjart hjá franska landsliðinu fyrir umspilsleiki kvöldsins. Frakkar unnu upp tveggja marka forskot Úkraínumanna og tryggðu sér sæti á HM í Frakklandi með 3-2 sigri á Úkraínu. Markið sem kom Frökkum á HM var sjálfsmark Oleg Gusev eftir mikla pressu frá Mamadou Sakho, varnarmanni Liverpool, en Sakho hafði áður skorað fyrsta mark Frakka í leiknum. Sigurmarkið kom á 72. mínútu leiksins. Frakkar unnu því samanlagt 3-2 og verða með á HM í fjórtánda sinn. Frakkar munu því taka þátt í sínu fimmta heimsmeistaramóti í röð en þeir urðu heimsmeistarar árið 1998. Frakkar voru fljótir að vinna upp forskot Úkraínumanna frá því í fyrri leiknum því það tók þá bara rétt rúmlega hálftíma að skora tvö mörk. Mamadou Sakho kom Frökkum í 1-0 á 22. mínútu þegar hann skoraði í autt markið eftir að hafa verið á réttum stað þegar Andriy Pyatov, markvörður Úkraínu, hálfvarði skot Franck Ribery. Karim Benzema kom Frökkum í 2-0 á 34. mínútu þrátt fyrir að vera augljóslega rangstæður þegar hann fylgdi eftir skoti Yohan Cabaye. Benzema hafði skorað annað mark skömmu áður en var þá ranglega dæmdur rangstæður. Frakkar þurftu því bara eitt mark í viðbót og það datt inn 18 mínútum fyrir leikslok þótt að boltinn hafi farið af Úkraínumanni og í netið.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Fótbolti ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn Antonelli hélt uppteknum hætti Formúla 1 Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport „Sem betur fer slapp þetta“ Fótbolti „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Fótbolti Fleiri fréttir „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ Inter er Ítalíumeistari „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjáðu markmann leggja upp mark gegn liði Kristians Glódís Perla úr leik í Meistaradeildinni Daníel Freyr lagði upp í sigri gegn Viktori Bjarka Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Ferguson fluttur á spítala Mark Hákonar dugði skammt Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ Sjá meira