Fótbolti

„Sannleikurinn er sá að við klúðruðum þessu“

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Íslenskir stuðningsmenn á Maksimir-leikvanginum í kvöld.
Íslenskir stuðningsmenn á Maksimir-leikvanginum í kvöld. Mynd/Vilhelm
„Þetta var ekki okkar dagur. Sannleikurinn er að við klúðruðum þessu,“ sagði Emil Hallfreðsson.

„Þeir eru með mjög gott lið en við getum gert miklu betur en við gerðum í dag,“ sagði Emil sem átti ágæta innkomu sem varamaður síðustu tuttugu mínútur leiksins.

„Króatar eru vanir að fara á HM og kunna þetta aðeins betur en við. Það getur vel verið að það hafi skipt sköpum,“ sagði Hafnfirðingurinn. Tilfinningar væru vissulega blendnar nú þegar undankeppninni væri lokið og ævintýrið úti.

„Við förum stoltir frá borði. En þegar maður kemst svona nálægt þessu þá verður maður svolítið fúll.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×