Fótbolti

"Átti að vera búið að ganga frá samningi við Lagerbäck fyrir löngu“

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Eiður Smári í baráttu við besta mann vallarins, Luka Modric.
Eiður Smári í baráttu við besta mann vallarins, Luka Modric. Mynd/Vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen lék að öllum líkindum sinn síðasta landsleik fyrir hönd Íslands á Maksimir-leikvanginum í Zagreb í kvöld.

„Við verðum bara að viðurkenna það að við vorum næstbestir í þessum leik. Maður reynir að spá í af hverju og hvernig þetta þróaðist. Eina afsökunin er að fyrri leikurinn hafi tekið of mikið úr okkur hvað orku varðar,“ sagði Eiður Smári í leikslok.

Framherjinn segir liðið hafa gert of mörg einföld mistök í fyrri hálfleiknum.

„Við vorum of lengi að taka boltann niður og spila honum í fyrri hálfleik. Þetta byggðist á löngum boltum frá hannesi og von um að vinna seinni bolta. Það bara gekk ekki upp.“

Eiður Smári er gallharður á því að Lagerbäck eigi að vera áfram með liðið.

„Ég tel að það sé engin spurning. Að mínu mati hefði átt að vera búið að ganga frá því fyrir löngu,“ sagði markahæsti leikmaður karlaliðsins frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×