Innlent

Utanríkisráðherra segir fjárlaganefnd taka sér dómsvald

Heimir Már Pétursson skrifar
Fjárlaganefnd synjar utanríkisráðuneytinu um aukafjárveitingu vegna fjármálamisferlis í sendiráði Íslands í Vínarborg.
Fjárlaganefnd synjar utanríkisráðuneytinu um aukafjárveitingu vegna fjármálamisferlis í sendiráði Íslands í Vínarborg.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gerði fyrirvara við atkvæði sitt með þeim lið í fjáraukalögum þessa árs á Alþingi í dag, þar sem fjárlaganefnd hafnar því að bæta utanríkisráðuneytinu tæplega 50 milljón króna tjón vegna fjársvika starfskonu í sendiráðinu í Vínarborg. En ráðuneytið hefur afskrifað kröfu á hendur konunni þar sem hún er ekki talin vera borgunarmanneskja fyrir kröfunni.

„Ég sagði hér í gær að þetta hlyti að vera misskilningur eða mistök hjá meirihluta fjárlaganefndar og ég held enn að það sé þannig og ítreka enn  ósk mina um að fá að koma fyrir nefndina og fjalla um málið þar. Ég mun samþiggja þetta hér í þessari atkvæðagreiðslu – í þessari atkvæðagreiðslu – en ég óska eftir því að fá að koma fyrir nefndina og fá skýringu frá nefndinni því þetta er alveg nýtt, að fjárlaganefnd taki að sér að gerast líka dómsvald,“ sagði utanríkisráðherra við atkvæðagreiðsluna.

En annarri umræðu um fjáraukalög þessa árs lauk á Alþingi í dag og spurning hvernnig Gunnar Bragi greiðir atkvæði um þennan lið þegar málið kemur til þriðju og lokaumræðu ef fjárlaganefnd breytir ekki afstöðu sinni.

Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra tók undir með utanríkisráðherra.

„Ég held að þetta sé algerlega fordæmalaust, að ráðuneyti sé látið taka svona niðurstöðu inn í sinn rekstur.Og ég velti því þá fyrir mér hvort að hæstvirt fjárlaganefnd þurfi ekki að setja almennar reglur og almenn viðmið. Vegna þess að út um allt í okkar stofnunum eru þær að lenda í dómsmálum,“ sagði Katrín.

Atvinnulausir fá ekki desemberuppbót

Þá felldi meirihluti þingmanna breytingartillögum frá minnihlutanum um að atvinnuleysistryggingasjóður fengi 240 milljón króna aukafjárveitingu þannig að hægt yrði að greiða fólki á atvinnuleysisbótum desemberuppbót.  Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra hafði lýst vilja sínum til þess en segist sætta sig við niðurstöðuna. En atvinnuleitendur hafa fengið desemberuppbót frá árinu 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×