Innlent

Algengt að nektarmyndum sé dreift í gegnum Snapchat

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Foreldrar verða að vera vakandi um það sem börn þeirra aðhafast í snjallsímum. Þetta segir móðir stúlku sem varð nýlega fyrir því að mynd af henni, berri að ofan, sem hún sendi í gegnum forritið Snapchat fór í mikla dreifingu meðal grunnskólanema á Akureyri og víðar.

Birna Blöndal skrifaði pistil á Facebook fyrir helgi þar sem hún rekur málið og hvetur fólk til að ræða við börn sín um alvarleika  myndsendinga, og annað sem fram fer á netinu. Pistillinn hefur farið eins og eldur í sinu um netheima og hafa tugir manns deilt honum á Facebook auk þess sem hann hefur  hefur birtst á fjölmörgum heimasíðum. Þar kemur meðal annars fram:

„Ég er slegin eftir þessa upplifun og ég hef það þó fínt miðað við dóttur mína. Það sem gert var á hennar hlut er grafalvarlegur hlutur og mér finnst óhugnalegt að þarna var hópur drengja á ferð að leika sér að henni. Síðan hefur hver tekið við af öðrum við að deila myndinni áfram."

Málið hefur nú verið kært til lögreglu og er tekið fyrir sem kynferðisbrot. Í stöðuuppfærslu sem birtist á Facebooksíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgi kemur fram eitt af því sorglegasta sem þau heyri af sé þegar börn og unglingar eru göbbuð til að taka af sér myndir sem síðan er dreift til annarra. 

Þegar slík mál koma upp er það alvarlegt og getur dreifing mynda af þessum toga flokkast sem ólögleg dreifing barnakláms. Og þá er spurningin hvort börnin geri sér grein fyrir alvarleika málsins og hvort foreldrarnir séu að fylgjast með.

Fréttastofan spjallaði við nokkur ungmenni í tíunda bekk Austurbæjarskóla og voru þau almennt mjög sammála um að foreldrar þeirra fylgdust lítið eða ekkert með snjallsímanotkun þeirra. Allir unglingarnir sem fréttastofa ræddi við sögðust þekkja dæmi um fólk sem lent hefur í því að nektarmyndum af þeim hafi verið dreift á milli fólks í gegnum Snapchat.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×