Fótbolti

Níu þúsund miðar seldir á síðari leikinn í Zagreb

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Króatískir stuðningsmenn á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið.
Króatískir stuðningsmenn á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið. Mynd/Daníel
Leikmenn króatíska landsliðsins í knattspyrnu lentu á flugvellinum í Zagreb í gær eftir um fimm klukkustunda flugferð frá Íslandi.

Króatíska ríkisútvarpið hefur eftir Dario Srna að leikmenn liðsins verði að líta á jákvæðu hliðarnar. Liðið hafi lítið sjálfstraust enda hafi gengi liðsins undanfarna fjóra til fimm mánuði haft slæm áhrif á liðið.

„Við verðum að setja í beinskiptan gír og leggja allt í sölurnar til að tryggja sæti á HM í Brasilíu,“ sagði Srna.

Davor Suker, forseti Knattspyrnusambands Króatíu, segir að um 9000 miðar hafi verið seldir á síðari leikinn á Maksimir-leikvanginum í Zagreb á þriðjudaginn. Hann vonar og reiknar með því að uppselt verði á leikvanginn sem tekur um 35 þúsund manns í sæti.

Króatíski blaðamaðurinn Alexandar Holiga sagði við Fréttablaðið á dögunum að afar litlar líkur væru á því að uppselt yrði á leikinn. Áhugi á landsliði Króata væri í sögulegu lágmarki í heimalandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×