Sport

35 ára Ólympíumeistari lést

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Soraya Jiménez fagnar hér gullinu sínu.
Soraya Jiménez fagnar hér gullinu sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Soraya Jiménez varð árið 2000 fyrsta konan frá Mexíkó til að vinna gull á Ólympíuleikum en hún lést í gær á heimili sínu eftir að hafa fengið hjartaáfall. Hún var aðeins 35 ára gömul.

Soraya Jiménez vann gull í ólympískum lyftingum í Sydney þegar hún vann 58 kg flokkinn. Hún lyfti 222,5 kílóum samanlagt og haft betur í keppni við Ri Song-Hui frá Norður-Kóreu.

Jiménez hafði verið hjartveik síðustu ár og var aðeins með eitt lunga. Hún hætti óvænt keppni eftir Ólympíuleikana í Aþenu en hún var þá bara 27 ára gömul.

Jiménez var þjóðhetja í Mexíkó þegar hún kom heim með gullverðlaun frá Ástralíu fyrir þrettán árum síðan.

Margir pólíkusar og fyrirfólk í Mexíkó hafa minnst Soraya Jiménez á Twitter og þar á meðal eru forsetinn, Enrique Pena Nieto, og Miguel Angel Mancera, borgarstjóri Mexíkóborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×