Fótbolti

Matthäus óttast að Khedira nái ekki HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Lothar Matthäus, leikjahæsti leikmaður í sögu Þýskalands, er ekki vongóður um að Sami Khedira muni hafa heilsu til að spila með Þjóðverjum á HM í Brasilíu í sumar.

Khedira sleit krossband í hné í vináttulandsleik gegn Ítalíu í gær og eftir leikinn sagði Joachim Löw, þjálfari þýska liðsins, að Khedira yrði frá í hálft ár.

„Ég tel að HM sé úr sögunni fyrir Sami Khedira,“ sagði Matthäus sem var í viðtali við þýska sjónvarpsstöð sem sérfræðingur.

„Ég þekki svona meiðsli af eigin raun og tel að honum takist ekki að koma sér aftur í sitt besta form áður en mótið hefst í Brasilíu.“

Khedira gekkst undir aðgerð í Þýskalandi strax í dag undir eftirliti lækna frá félagi hans, Real Madrid á Spáni. Líklegt þykir að hann nái ekki að spila aftur með félaginu á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×