Ísfirðingar skildir eftir í lausu lofti 4. júlí 2013 00:01 Ísfirðingar fjölmenntu niður á höfn til að gæða sér á sjávarréttum og knýja á málstaðinn þegar rækjubátar komu úr síðustu ferð.
Úthafsrækjuveiðar hafa verið stöðvaðar og engin veit hvernig stjórnun þeirra verður háttað af nýrri ríkissjórn. Störf 120 Ísfirðinga eru í húfi sem finnst þeir hafa verið skildir eftir í lausu lofti. Þeir óttast að kvótinn fari til eldri kvótahafa. Bæjarráð Ísafjarðabæjar hvetur sjávar- og landbúnaðarráðherra til að taka tillit til þeirra hagsmuna sem í húfi eru á norðanverðum Vestfjörðum þegar hann tekur ákvörðun um framhald úthafsrækjuveiða. Í ályktun bæjarráðs segir að störf 120 manns séu í húfi. Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður Rækjuvinnslunar Kampur, segir að framtíð veiðanna geti ráðist með þessari ákvörðun. Árið 2010 gaf Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegsráðherra, úthafsrækjuveiðar frjálsar. Sjórnvöld stöðvuðu þær hinsvegar síðastliðinn mánudag og hafa látið að því liggja að tilefni sé til breytinga á stjórnun þeirra. „Á þessum þremur árum hefur Rækjuvinnslan Kampi byggt gríðarlega mikið upp hér á Ísafirði,“ segir Daníel Jakobsson bæjarstjóri. „Til dæmis hafa þeir tekið atvinnuhúsnæði í gegn sem áður var lítil reisn yfir.“ Hann segir Ísfirðinga óttast að úthafsrækjukvótinn verði úthlutaður eldri kvótahöfum. Það er að segja þeim sem áttu kvótan áður en veiðarnar voru gefnar fjálsar. Haft er eftir Brynjari Ingasyni, frá Kampa, á fréttavefnum BB að þá hafi kvótahafar veitt 12 prósent kvótans meðan 88 prósent voru leigð út. Jón Guðbjartsson segir að ef sú leið verði farin muni rækjuvinnslan leggjast af. „Og þá mæli ég fyrir munn allra þeirra sem standa í rækjuvinnslu í dag,“ segir hann. Sex Rækjuvinnslur eru nú starfandi í landinu. Slegið var til sjávarréttarveislu við höfnina á Ísafirði í hádeginu á þriðjudag þegar úthafsrækjubátar komu úr sinni síðustu ferð. Tilefni veislunnar var ekki klárt þegar Jón var inntur eftir því. „Ef stjórnvöld fara þá leið sem LÍÚ leggur til og bindur kvótann við útgerðirnar sem áttu skipin sem leigð voru til þessara veiða fyrir margt löngu þá ku þetta vera erfidrykkja því þá mun fólk ekki sjá þessa úthafsrækju aftur. En ef þetta verður falið þeim sem hafa stundað þessar veiðar undanfarið þá er þetta veisla,“ segir hann. Daníel gagnrýni einnig þá meðhöndlun stjórnvalda að stöðva veiðarnar án þess að hafa einhver svör á reiðum höndum um það hvað taki við.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Sjá meira