Lykilmaður Íslands er Lagerbäck Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. nóvember 2013 07:00 Dario Srna var heldur kuldalegur við komuna til Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið. Fréttablaðið/Valli „
Við höfum verið meðvitaðir um mögulegar veðuraðstæður frá fyrsta degi. Íslensku strákarnir eru líklega vanari sviptivindum og kulda. Það er samt engin afsökun fyrir okkur,“ segir Dario Srna, fyrirliði Króata. Srna, sem á að baki 108 landsleiki og 20 mörk með landsliðinu, segir marga leikmenn Króata hafa spilað við erfiðar aðstæður. Jafn margir leikmenn séu í liðunum og aðstæður þær sömu fyrir bæði lið. Hægri bakvörðurinn vildi ekki nefna nein nöfn þegar hann var spurður út í hættulegustu leikmenn íslenska liðsins. „Þeirra lykilmaður er þjálfarinn, Lars Lagerbäck. Hann er gamalreyndur þjálfari og þekkir vel til Króata,“ segir Kovac. Sá sænski stýrði landsliði Svía í þrígang gegn Króötum en allir leikirnir töpuðust. Leikurinn í kvöld verður því fjórða tilraun Lagerbäcks gegn Króötum. Srna, sem spilar með Shaktar Donetsk í Úkraínu, segir Króata bera mikla virðingu fyrir íslenska liðinu. Engin hætta sé á vanmati. „Þeir höfnuðu ekki í 2. sæti riðilsins fyrir slysni. Þeir sýndu hve mikinn karakter liðið hefur með því að jafna í 4-4 eftir að hafa lent 4-1 undir gegn Sviss á útivelli,“ segir bakvörðurinn sókndjarfi. Srna er þó hvergi banginn og segir það hafa afar mikla þýðingu fyrir króatísku þjóðina að liðið tryggi sér sæti í HM. Þjóðin þurfi á einhverju að halda til að hlakka til næstu mánuði. „Við höfum trú á okkur og þjálfurum okkar. Ef við spilum í takt við leiðbeiningar hans þá förum við á HM.“
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Fleiri fréttir Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Sjá meira