Fótbolti

Hjörtur Logi genginn til liðs við Sogndal

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjörtur Logr er farinn til Noregs.
Hjörtur Logr er farinn til Noregs. mynd / sogndalfotball.no
Hjörtur Logi Valgarðsson er genginn til liðs við norska liðið Sogndal frá IFK Gautaborg en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Hjörtur gerir þriggja ára samning við liðið en núverandi þjálfari Sogndal var með Gautaborg árið 2011 og þekkir vel til Hjartar.

Leikmaðurinn hefur verið töluvert á bekknum hjá sænska liðinu í vetur og því lá beint við að færa sig um set.

Hjörtur er fæddur árið 1988 og leikur í stöðu vinstri bakvarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×