„Buðust til að græja þessa ungu konu fyrir skólann í haust“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 23. ágúst 2013 21:53 Guðrún Axfjörð Elínardóttir er ráðgjafi hjá Drekaslóð. samsett mynd „
Verslunin A4 hafði samband við mig í gær og þau hafa boðist til að græja þessa ungu konu fyrir skólann í haust,“ segir Guðrún Axfjörð Elínardóttir, ráðgjafi hjá Drekaslóð, fræðslu- og þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Í vikunni auglýsti Guðrún eftir aukabókum frá þeim sem verið hafa í námi sem skila mætti á skiptibókamörkuðum fyrir inneignarnótu. Skjólstæðingur Guðrúnar, rétt rúmlega tvítug, einstæð móðir sem varð fyrir einelti, er að hefja nám að nýju en gat ekki staðið straum af kostnaðinum sem fylgir skólabókakaupum. Því var ákveðið að reyna að létta undir með henni. „Ég hrindi þessari söfnun af stað vegna einnar duglegrar og hugrakkrar konu sem hreinlega má ekki missa af þessu tækifæri til menntunar sem hún hefur nú fengið, skrifar Guðrún um leið og hún óskar eftir aukabókum, og bætir því við að ef söfnunin gangi vel sé draumurinn sá að til verði sjóður sem fleiri geti sótt í til stuðnings. „Það sem upphaflega átti að vera ákveðin redding fyrir fáeina nemendur gaf okkur þá hugmynd að stofna skólabókasafn fyrir skjólstæðinga Drekaslóðar,“ segir Guðrún í samtali við fréttastofu Vísis. „Um er að ræða karla jafnt sem konur á öllum aldri og úr öllum stigum þjóðfélagsins. Það eru ekki síður ungir karlmenn sem eiga erfitt með að fóta sig í námi að nýju eftir að hafa flosnað upp úr því.“ Guðrún segir að enn sé tekið við bókum og í raun sé engin lokadagsetning á því hvenær hægt sé að skila þeim inn. Þó vandræði ungu stúlkunnar hafi verið kveikjan að söfnuninni séu margir aðrir sem geti notfært sér aukabækurnar. Fyrir þá sem eiga engar bækur sem eru gjaldgengar á skiptibókamarkaði en langar samt að hjálpa til er hægt að leggja inn á reikning Drekaslóðar. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Drekaslóðar. Guðrún minnir svo á Reykjavíkurmaraþonið á morgun en þar hlaupa nokkrir í nafni Drekaslóðar. Hægt er að heita á hlauparana til miðnættis á mánudag
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira