Kennarar ekki að endurflytja sama efnið Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 22. desember 2013 11:23 Mynd úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Umfjöllunin um kennslustundir framhaldsskólakennara er villandi og Ársæll Guðmundsson, skólameistari, kannast ekki við þær. Hann kom í viðtal hjá Sigurjóni M. Egilssyni í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni. Sigurjón hafði eins og fram hefur komið á Vísi skoðað stundatöflur nokkurra framhaldsskólakennara og komist að því að þeir kenndu frá átta til 22 stundir á viku. Ársæll segist ekki kannast við þessar tölur. Kennarar í 100 prósent starfi eiga að kenna í 24 kennslustundir á viku. Eftir 55 ára fara stundirnar niður í 23 tíma á viku og niður í 19 eftir að kennarinn verður sextugur. Þessu breyti enginn, það geti verið um það að ræða að kennari sinni öðrum störfum sé til dæmis áfangastjóri og þá fækki beinum kennslustundum. Hann segir að hjá kennara í fullu starfi fari um 30 prósent tíma hans í beina kennslu en mikill tími fari í undirbúning og úrvinnslu eftir kennslu. Sigurjón spurði Ársæl hvort það væri ekki of mikill tími sem færi í undirbúning. Ársæll tók dæmi um þátt Sigurjóns og sagði að þrátt fyrir að þátturinn væri aðeins tvær klukkustundir á viku dytti engum í hug að það færu aðeins tveir tímar hjá Sigurjóni í þáttinn. Sigurjón benti þá á að kennarar væri að kenna sama efni og hvort að það skipti ekki máli. Þá svaraði Ársæll að það væri ekki svo einfalt. Kennarar eru með 20 til 25 nemendur í hverjum tíma. Oft væri um að ræða ósjálfráða börn og þá þyrftu kennarar að vera í samskiptum við heimili barnanna og foreldra. Eina önnina gæti kennari verið með mjög erfiða einstaklinga í bekk hjá sér og næstu önn væri hópurinn allt annar. Það að kenna væri ekki bara að ýt á „play“ og endurflytja sama efnið, kennsla væri flóknari en svo. Viðtalið við Ársæl er í heild sinni með fréttinni.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira