Utanríkisráðherra segir fjárlaganefnd taka sér dómsvald Heimir Már Pétursson skrifar 12. desember 2013 16:52 Fjárlaganefnd synjar utanríkisráðuneytinu um aukafjárveitingu vegna fjármálamisferlis í sendiráði Íslands í Vínarborg.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gerði fyrirvara við atkvæði sitt með þeim lið í fjáraukalögum þessa árs á Alþingi í dag, þar sem fjárlaganefnd hafnar því að bæta utanríkisráðuneytinu tæplega 50 milljón króna tjón vegna fjársvika starfskonu í sendiráðinu í Vínarborg. En ráðuneytið hefur afskrifað kröfu á hendur konunni þar sem hún er ekki talin vera borgunarmanneskja fyrir kröfunni. „Ég sagði hér í gær að þetta hlyti að vera misskilningur eða mistök hjá meirihluta fjárlaganefndar og ég held enn að það sé þannig og ítreka enn ósk mina um að fá að koma fyrir nefndina og fjalla um málið þar. Ég mun samþiggja þetta hér í þessari atkvæðagreiðslu – í þessari atkvæðagreiðslu – en ég óska eftir því að fá að koma fyrir nefndina og fá skýringu frá nefndinni því þetta er alveg nýtt, að fjárlaganefnd taki að sér að gerast líka dómsvald,“ sagði utanríkisráðherra við atkvæðagreiðsluna. En annarri umræðu um fjáraukalög þessa árs lauk á Alþingi í dag og spurning hvernnig Gunnar Bragi greiðir atkvæði um þennan lið þegar málið kemur til þriðju og lokaumræðu ef fjárlaganefnd breytir ekki afstöðu sinni. Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra tók undir með utanríkisráðherra. „Ég held að þetta sé algerlega fordæmalaust, að ráðuneyti sé látið taka svona niðurstöðu inn í sinn rekstur.Og ég velti því þá fyrir mér hvort að hæstvirt fjárlaganefnd þurfi ekki að setja almennar reglur og almenn viðmið. Vegna þess að út um allt í okkar stofnunum eru þær að lenda í dómsmálum,“ sagði Katrín.Atvinnulausir fá ekki desemberuppbótÞá felldi meirihluti þingmanna breytingartillögum frá minnihlutanum um að atvinnuleysistryggingasjóður fengi 240 milljón króna aukafjárveitingu þannig að hægt yrði að greiða fólki á atvinnuleysisbótum desemberuppbót. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra hafði lýst vilja sínum til þess en segist sætta sig við niðurstöðuna. En atvinnuleitendur hafa fengið desemberuppbót frá árinu 2010.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Fleiri fréttir Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Sjá meira