Fótbolti

Orlando reynir að semja við Kaká

Kaká í landsleik.
Kaká í landsleik.
Nýjasta liðið í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta, Orlando City, er að leita að liðsstyrk þessa dagana. Liðið ætlar sér að reyna að fá Brasilíumanninn Kaká til félagsins.

Liðið mun koma inn í deildini árið 2015 en sama ár rennur samningur Kaká við AC Milan út.

"Öll lið myndu elska að hafa Kaká í sínum röðum en við erum ekki búnir að ganga frá neinu samkomulagi," sagði hinn brasilíski félagsins, Flavio Augusto da Silva.

"Við ætlum okkur að semja við brasilíska stjörnu og það er algert forgangsatriði hjá félaginu. Það gæti orðið Kaká eða einhver annar."

Þjálfari Orlando er Adrian Heath, fyrrum framherji Everton. Forseti félagsins og eigandi með Da Silva er Phil Rawlins, fyrrum stjórnarmaður hjá Stoke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×