Fótbolti

Platini er öfundsjúkur maður

Leonardo.
Leonardo.
Brasilíumaðurinn Leonardo, fyrrum íþróttastjóri franska félagsins PSG, sendir Michel Platini, forseta UEFA, tóninn í dag.

Fyrr í ár var Leonardo dæmdur í bann frá knattspyrnu fram á næsta sumar fyrir að ýta við dómara. Því banni var síðar breytt en þá hafði Leonardo þegar hætt í starfi vegna málsins.

Hann er allt annað en sáttur við afskipti Platini af sínum málum.

"Ég hætti ekki af fúsum og frjálsum vilja. Það var afleiðing öfgafullra viðbragða forráðamanna deildarinnar. Pólítík hafði mikið með málið að gera," sagði Leonardo reiður.

"Ég er ekki hrifinn af mörgu sem hefur verið sagt og ég var ekki heldur hrifinn af því hvernig Platini hagaði sér gagnvart mér. Hann fór um allt og sagði hluti um mig sem eru ekki boðlegir. Platini er pólitíkus og öfundsjúkur maður."

Leonardo hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti hjá PSG. Þar sem bannið var fellt úr gildi má hann byrja að vinna aftur í boltanum. Hann var orðaður við starf hjá Inter á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×