Fótbolti

Solskjær valdi fjölskylduna fram yfir sigurhátíðina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ole Gunnar Solskjær.
Ole Gunnar Solskjær. Mynd/NordicPhotos/Getty
Ole Gunnar Solskjær gerði Molde að norskum bikarmeisturum í gær og hefur þessi fyrrum leikmaður Manchester United því unnið þrjá stóra titla á fyrstu þremur árum sínum sem þjálfari norska liðsins.

Molde vann 4-2 sigur á Rosenborg í bikarúrslitaleiknum á Ullevaal-leikvanginum í gær. Molde lenti 1-2 undir en skoraði þrjú síðustu mörkin á síðustu tuttugu mínútunum. Þetta var fyrstu bikarsigur félagsins frá 2005.

Skelfileg byrjun á tímabilinu (1 stig í fyrstu 6 leikjunum) sá til þess að Molde náði ekki að vinna norska titilinn þriðja árið í röð en liðið endaði í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Norskir fjölmiðlar gerðu síðan mikið úr því að Ole Gunnar Solskjær hafi skrópað á sigurhátíðina í Molde kvöldið en hann valdi frekar að snúa heim í faðm fjölskyldunnar í Kristiansund.

Leikmenn Molde fögnuðu hinsvegar vel og lengi með stuðningsfólki sínu á leikvangi félagsins. Molde er fyrsta félagið til að vinna stóra titla þrjú ár í röð síðan hinni miklu sigurgöngu Rosenborg-liðsins lauk.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×