Fótbolti

FIFA mun ekki taka HM 2014 af Brasilíumönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ricardo Terra Teixeira, forseti brasilíska sambandsins, Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu og Sepp Blatter, forseti FIFA.
Ricardo Terra Teixeira, forseti brasilíska sambandsins, Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu og Sepp Blatter, forseti FIFA. Mynd/NordicPhotos/Getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er ekki með varaplan í gangi varðandi Heimsmeistarakeppnina sem fer fram í Brasilíu næsta sumar. Brasilíumönnum gengur ekki nógu vel að gera allt klárt.

Tveir verkamenn létust í gær þegar krani hrundi og eyðilagði hluta stúkunni á Corinthians-vellinum í Sao Paulo. Leikvangurinn er ekki tilbúinn en þar eiga Brasilíumenn að spila opnunarleik mótsins eftir minna en 200 daga.

BBC hefur eftir háttsettum manni innan FIFA að keppnin verði ekki tekin af Brasilíumönnum þrátt fyrir margir vellir séu ekki tilbúnir. Sex leikvangar eru tilbúnir en það á eftir að klára hina sex og þar eru Brasilíumenn í kapphlaupi við tímann.

Slysið í gær var það þriðja sem kostar mannslíf en tveir verkamenn létust einnig í tveimur slysum á síðustu tveimur árum.

Corinthians-völlurinn verður í aðalhlutverki á HM en þar verða spilaðir sex leikir í keppninni þar á meðal opnunarleikurinn og annar undanúrslitaleikurinn.

FIFA hefur einu sinni skipt um gestgjafa. Kólumbíumenn áttu að halda keppnina 1986 en hún var færð yfir til Mexíkó aðallega vegna slæmrar fjárhagstöðu Kólumbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×