Innlent

Fumlaus viðbrögð hjá áhöfn Goðafoss

Heimir Már Pétursson skrifar
Áhöfninni á flutningaskipi Eimskipafélagsins Goðafossi tókst að koma í veg fyrir að eldur sem kom upp í skipunu snemma í morgun vestur af Færeyjum breyddist út. Ekkert amar að þrettán manna áhöfn skipsins og þremur farþegum sem allt eru Íslendingar.

Landhelgisgæslunni barst beiðni um aðstoð klukkan fimm í morgun og fóru þá þyrlur Gæslunnar, flugvél og varðskipið Þór í viðbragðsstöðu en þyrlunum var flogið austur á Höfn til að vera nær skipinu og flugvélin flaug í átt að því. Ólafur William Hand upplýsingafulltrúi Eimskipa segir að eins og staðan er nú verði skipinu siglt til Íslands en ekki Færeyja.

„Nú er áhöfnin að jafna sig eftir erfiða nótt, skoða aðstæður og taka ákvörðun um næstu skref,“ segir Ólafur.

mynd/landhelgisgæslan
Menn séu að setja olíu á rétta staði í skipinu og gera almennt klárt til heimsíglingar. En hvorki eldur né reykur barst í vélarrúm skipsins á meðan hættuástand varði og aðalvél skipsins í gekk allan tímann sem skipti miklu máli. Eldurinn kom upp í afgasröri í stromphúsi skipsins.

„Þetta gekk yfir á um einum og hálfum klukkutíma frá því menn urðu eldsins varir þar til búið var að slökkba hann,“ segir Ólafur. Menn hafi gengið hratt og örugglega til verka.

„Og Landhelgisgæslan og aðrir sem komu að málum í landi stóðu sig með prýði. Við erum heppnir Íslendingar  að eiga svona góða sjómenn. Þeir eru með mikla og góða þjálfun í svona hlutum,“ segir hann.

Þá hafi skipt miklu máli að vita af viðbrögðum Gæslunnar og þeirri aðstoð sem hún hefði getað veitt ef ver hefði farið.

Leiðindaveður er á slóðum Goðafoss en ef allt gengur að óskum ætti skipið að vera komið til Reykjavíkur eftir einn og hálfan til tvo sólarhringa, allt eftir því hvernig veður þróast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×