Fótbolti

Biður þá svartsýnu að sitja heima og hafa slökkt á sjónvarpinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða FCK
Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson var ekki sérstaklega sáttur við trú lesenda Fótbolta.net á íslenska landsliðinu í baráttunni sem framundan er við Króata.

Á vefsíðunni má taka þátt í könnun þar sem spurt er hvort fólk telji að Ísland muni slá út Króata og fara á HM. Skoðanir skiptast nánast jafnt á milli þeirra bjartsýnu og svartsýnu. 1.852 segja já en 1.869 segja nei.

Skilaboð Ragnars, á Instagram-síðu miðvarðarsins, til þeirra svartsýnu voru skýr:

„Langar að biðja þessa 1.869 að koma ekki nálægt Laugardalnum næsta föstudag. Höfum ekkert við þetta hugarfar að gera. Líka hafa slökkt á sjónvarpinu. Takk”.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×