Fótbolti

Kolbeinn hvíldi á æfingunni í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/vilhelm
Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður íslenska landsliðsins, í knattspyrnu æfi ekki með landsliðinu á Kópavogsvelli í dag en hann var hreinlega hvíldur sökum álags í undanförnum leikjum með Ajax.

Íslenska landsliðið kom saman fyrst í dag og æfði á Kópavogsvelli fyrir umspilsleikina gegn Króötum 15. og 19. nóvember en liðin mætast fyrst á Laugardalsvelli á föstudagskvöld.

Það er löngu orðið uppselt á leikinn og mikil eftirvænting í þjóðfélaginu fyrir þessa tvö leiki en sigurvegarinn úr umspilinu fer á heimsmeistaramótið í Brasilíu á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×