Fótbolti

Tólfan stillir saman strengina í kvöld

Stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins, Tólfan, ætlar að hefja gleðina fyrir Króatíuleikinn í kvöld með skemmtun á Ölveri.

Takmarkið er að skemmta sér saman og syngja. Hreimur Örn Heimisson mætir með gítarinn og töframaðurinn Einar Mikael mun sýna listir sínar.

Svo verður einnig happdrætti í gangi og eru vinningar frá fjölda fyrirtækja.

Svo er aldrei að vita nema aðstoðarlandsliðsþjálfarinn, Heimir Hallgrímsson, láti svo sjá sig.

Stemningin hefst klukkan 20.00 og er 20 ára aldurstakmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×