Fótbolti

Allir komust heilir frá síðdegisæfingunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá fyrri æfingu landsliðsins í Kórnum í dag.
Frá fyrri æfingu landsliðsins í Kórnum í dag. Mynd/Vilhelm
Karlalandslið Íslands æfði í Kórnum síðdegis í dag eftir að hafa áritað veggspjöld fyrir fjölda stuðningsmenn landsliðsins.

Ómar Smárason, leyfis- og markaðsstjóri KSÍ, staðfesti í samtali við Vísi að æfingin hefði gengið vel fyrir sig. Um taktíska æfingu hefði verið að ræða en landsliðið æfði einnig á sama stað fyrir hádegi í dag.

Að sögn Ómars eru allir 24 leikmenn liðsins klárir í slaginn. Það er Birkir Már Sævarsson líka en hann þarf því miður að taka út leikbann í fyrri leiknum á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×