Fótbolti

Rúnar Kristins: Hallgrímur á að spila hægri bakvörðinn

Guðni Bergsson og Rúnar Kristinsson eru ekki fullkomlega sammála um það hver sé best til þess fallinn að fylla í skarð Birkis Más Sævarssonar í stöðu hægri bakvarðar gegn Króötum.

Guðni og Rúnar eru gestir Sportspjallsins þessa vikuna og ræddu landsleik Íslands og Króata við Kolbein Tuma Daðason.

Rúnar telur best að notast við varnarmann, einhvern sem þekkir stöðuna og hefur spilað hana áður. Hallgrímur Jónasson er besti kosturinn að hans mati.

Guðni var í svipuðum gír og Rúnar en nefndi þó annan kost til sögunnar.

Sportspjallið verður birt í heild sinni á Vísi klukkan 12 á hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×