Fótbolti

Írar vilja gera Ísland að sýslu í landinu

Strákarnir fagna sæti í umspilinu.
Strákarnir fagna sæti í umspilinu. mynd/vilhelm
Írarnir sem ákváðu að styðja íslenska landsliðið gegn Króötum hafa vakið athygli víða um heim fyrir uppátæki sitt. Hugmyndin fæddist yfir bjórglasi hjá Eion Conlon og brasilískum samstarfsmanni hans.

Írar eru ekki á leið á HM og Conlon vildi endilega styðja eitthvað lið.

"Við hlógum er ég fékk þessa hugmynd. Við myndum ekki komast nær HM í Brasilíu en að styðja Ísland. Það munar aðeins einum staf á nöfnum landanna," sagði Conlon.

Skömmu síðar voru Conlon og félagar hans búnir að stofna síðu þar sem Írar gætu stutt við bakið á Íslandi. Tæplega 12 þúsund manns hafa sett nafn sitt á síðuna en hún var auglýst rækilega á Twitter.

Það eru 32 sýslur á Írlandi og Conlon vill gera Ísland að sýslu númer 33.

"Það búa aðeins 320 þúsund manns á Íslandi og Ísland yrði aðeins fimmta stærsta sýslan á Írlandi. Það er ótrúlegt hvað þessi þjóð hefur náð flottum árangri. Vonandi heldur þetta góða gengi Íslands áfram," sagði Conlon en hann hefur gefið íslensku strákunum írsk nöfn.

Eiður Smári er Eidur O'Gudjohnsen og Kári Árnason heitir Kári McÁrnason hjá Conlon og félögum.

Hér má lesa viðtalið við Conlon í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×