Fótbolti

Modric gaf áritanir á svellinu í Kópavogi | Myndir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Modric veitir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum eiginhandaráritanir í dag.
Modric veitir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum eiginhandaráritanir í dag. Mynd/Vilhelm
Króatíska landsliðið í knattspyrnu æfði á Kópavogsvelli í hádeginu í dag. Leikmennirnir voru vel búnir enda veður oft verið betra.

Leikmenn liðsins voru allir með hanska og nánast allir með húfu. Luka Modric, leikmaður Real Madrid, leyfði reyndar lokkunum sínum að leika sér í vindinum í Kópavoginum.

Modric gaf sér örlítinn tíma til þess að gefa áhugasömum íslenskum krökkum eiginhandaráritun á leið sinni úr rútunni og á æfinguna. Króatíski miðjumaðurinn þurfti að passa sig að renna ekki á klakanum sem þakti gangstéttina við Kópavogsvöllinn í dag.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var að sjálfsögðu mættur til að fylgjast með Króötunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×